08mars

Framundan er ???

Halló elsku snúllurnar mínar

Langaði bara aðeins að láta heyra í mér á þessari síðu.

Mér þótti MJÖG leiðinlegt að komast ekki á síðasta hitting... .alveg glatað!!! Þannig að ég er bara að spá í hvað sé framundan hjá okkur skvísum. Ég er til í hvað sem er, hvort sem það eru kaffihúsahittingar, saumklúbbar, snyrtivörukynningar, baby-klúbbar, djammm .. eða bara einhvað hversdagslegt spjall... múha... er farin að þrá félagsskap bla-skvísna hehehe. 

Get tekið að mér skipulagningu en get því miður ekki boðið uppá húsnæði. Er Magga Dís svo ekki að koma til landsins á næstu dögum??

Ætluðum við að halda einhverja árshátíð?? Hvernig var stemmningin fyrir því??

Ég og Annas munum líklega flytja út í maí. Vitum þó ekki ennþá hvort við munum flytja til Hannover í Þýskalandi eða Bern í Sviss. Það fer vonandi að koma í ljós MJÖG fljótlega. En planið er að vera úti næstu 3 árin.  

Um páskana erum við að fara á Ísafjörð á skíði og á Aldrei fór ég suður með nokkrum vinum hans Annasar úr HR. Þannig að ef einhver hefur áhuga á að koma með endilega látið þið mig vita;)

Endilega látið heyra í ykkur

Bestu kveðjur

Kristín

08. mars 2010 klukkan 10:47
Kristín Björg Ólafsdóttir
37 athugasemdir
22febrúar

DJAMM

Sælar

Langar að bjóða ykkur á ekta bla djamm næstkomandi laugardagskvöld. Vonst til að sjá ykkur flestar með góða skapið, í kjól/pils, með söngvatn og barbíbók um kl 20:30

kveðja

Heiða Ösp

22. febrúar 2010 klukkan 21:51
Heiða Ösp Kristjánsdóttir
19 athugasemdir
28janúar

6. febrúar

Nú verða allir brjálaðir út í mig....Og með réttu...Ég er reglulega leið sjálf !!!! Þannig er mál með vexti að eftir mikil heilabrot vorum við búin að taka ákvörðun um partýhald þann 6. febrúar...EN Á SÍÐUSTU STUNDU BRÁST PÖSSUN !!! Frown Ég hef því ekki lengur tök á að halda partýið þessa helgi eins og til stóð Frown Ég var þess í stað að hugsa hvort við hefðum átt að taka okkur saman um miðjan daginn með börnin og fara í sund og/eða húsdýragarðinn ?!? Hvað finnst ykkur ?

Getum við svo PLEASE reynt að hittast eitthvað í bráð og djamma saman ?!? Það er svo komin tími á það, er stemmning fyrir árshátíð ?!? Endilega komið með hugmyndir !!!


kær kveðja
Guðbjörg
28. janúar 2010 klukkan 08:29
Guðbjörg Hulda Einarsdóttir
24 athugasemdir
10janúar

Er ekki kominn tími á hitting???

Sælar skvísur!!!

Jæja, núna finnst mér vera kominn tími á hitting....ég veit ekki með ykkur...!!!!  En allavegana þá ætla ég að bjóða til Bla-stúlknahittings á fimmtudaginn 14. janúar, kl 19:30 (er ekki bara betra að byrja fyrr ef austanfjallsskvísur mæta??).
 
Vonandi sjá sem flestar sér fært um að mæta, endilega bara að kommenta.

Viktoría

ps. Velkomið að taka með handavinnu til að nýta tímann,) 


10. janúar 2010 klukkan 14:15
Viktoría Björk Erlendsdóttir
16 athugasemdir
14desember

Niðurstöður síðustu könnunar


Hvort munu Aðalbjörg og hákon eignast strák eða stelpu?
Stelpu 36%
Strák 64%  góðar
Hef ekki hugmynd 0%
Vil ekki svara 0%
14. desember 2009 klukkan 14:42
Klúbburinn - BLA.IS
1 athugasemd
25nóvember

Hittingur 5. desember - AFLÝST

ÞARF ÞVÍ MIÐUR AÐ AFLÝSA!
Hróbjartur er nefnilega orðinn lasinn. Það gengur bara betur næst Smile

Sælar allar!

Heldur betur langt síðan ég hef hitt ykkur almennilega!

Við höfum verið á Reyðarfirði síðasta mánuðinn en við komum heim núna fyrir helgi, passlega til að smella okkur í jólaskapið á sunnudaginn!

En í von um að geta hitt einhverjar ykkar ætla ég að bjóða ykkur heim þann 5. des. milli kl. 13 og 16 og að sjálfsögðu væri voða gaman að sjá sem flest kríli með í för! Hróbjartur Ingi verður a.m.k. heima Wink Þetta verður ekki Pálínuboð í þetta sinn svo þið þurfið ekki að koma með neitt með ykkur nema að sjálfsögðu að ykkur langi sérstaklega til að leyfa öðrum að smakka afrakstur ykkar þá er það alveg leyfilegt Smile

Endilega látið vita hvort þið komist eður ei!
25. nóvember 2009 klukkan 10:32
Gróa Valgerður Ingimundardóttir
10 athugasemdir
22nóvember

Reikningsskil

Elsku vinir mínir
Þá er flóknum reikningi lokið....Djók !!! Smile
Þetta eru 1400 kr á mann = 2800 kr á par, sem er ekki neitt !!! Þökk sé sex einstaklingum sem héldu þessu jólahlaðborði uppi og þeir aðilar borga náttúrlega ekki neitt (Helga, Árni, Elín, Gústi, Óli og Bjarnheiður)

Hinir greiða eftirfarandi:

2800 kr    Guðbjörg  og Kári
1800 kr    Kristín og Annas
1800 kr    Anna Heiður og Gulli
2100 kr    Viktoría og Gilsi
2800 kr    Heiða og Jói
2800 kr    Bogga og Eyþór
1400 kr    Sóley

Leggið þetta inn á bnr.  115-26-040442 og kt. 060281 3359 (Guðbjörg Hulda Einarsdóttir) Megið gjarnan senda mér tilkynningu þegar þið leggið inn Wink

Takk fyrir frábært kvöld og núna er bara að að leggja höfuð í bleyti og ákveða hvar og hvenær “árshátíðin" okkar verður !!! Laughing

knús

Guðbjörg
22. nóvember 2009 klukkan 11:23
Guðbjörg Hulda Einarsdóttir
7 athugasemdir
18nóvember

Frábært Jólahlaðborð

Takk æðislega fyrir frábært jólahlaðborð, og yndislega skemmtun á laugardagskvöldið. Þetta var virkilega vel heppnað og er maður bara strax farinn að hlakka til næsta jólahlaðborðs já eða bla-hittings:)

Kv
Helga og Árni
18. nóvember 2009 klukkan 07:58
Klúbburinn - BLA.IS
6 athugasemdir
09nóvember

Hjálmar á 800 bar !!!

Helga og Árni vilja gjarnan fá að vita hverjir ætla sér á ball upp á það að geta keypt miða í forsölu ?!?

Skrifið ykkur hér fyrir neðan sem hafið áhuga :D


09. nóvember 2009 klukkan 21:30
Guðbjörg Hulda Einarsdóttir
14 athugasemdir
09nóvember

Jólahlaðborð taka 2

Sæl lömbin góð

Eftir 4 daga brestur jólahlaðborðið á og það er sko ÞVÍLÍK SPENNA Í MANNSKAPNUM !!!! Ég er búin að vera í sambandi við útvalda :D og eftir miklar vangaveltur hefur verið ákveðið að.

Helga ætlar að vera í bandi við fólk varðandi borðbúnað, stóla og slíkt.

Á föstudaginn þrettánda ætla Sóley, Bjarnheiður, Guðbjörg og Helga að hittast í Bónus á Selfossi og kaupa í matinn.

Elín sér um hangikjötið og hefur Heiðu til vara
Bjarnheiður sér um lambaforrétt
Sóley og Óli ætla að sjá um kartölfur, og sósur
Helga um dessert og þær sem geta komið með smá smákökur geri það (Anna mín þú mátt sjá um eina sort ef þú getur og vilt :D )
Helga og Elín sjá um laxinn
Kristín um waldorfsalat
Guðbjörg um svínakjötið

Á laugardeginum þurfa svo einhverjar að mæta til Helgu milli kl. 17-18 til að dekka upp og græja matinn Wink

Svo er það pakkaleikurinn = cirka 1000 kr og muna eftir að koma með 1 pakka á mann = 2 pakka á par.

Ég tel 21 sem ætlar að reyna mæta = Heiða, Guðbjörg, Kári, Viktoría, Gilsi, Helga, Árni, Sóley, Óli, Heiða, Jói, Anna Heiður, Gulli, Elín, Gústi, Bogga, Eyþór, Kristín, Annas og vonandi Aðalbjörg og Hákon ? Er þetta rétt talning ?

Mæting kl. 19 !!!

Hlakka til að heyra frá ykkur

Guðbjörg

09. nóvember 2009 klukkan 21:29
Guðbjörg Hulda Einarsdóttir
11 athugasemdir

Klukkan

Auglýsing

Könnun

Hvort munu Helga og Árni eignast strák eða stelpu?,Hvort munu Sóley og Óli eignast strák eða stelpu?

Prófíll

  • Nafn: Klúbburinn - BLA.IS

Klúbburinn

Við erum 14 kvennskörungar í saumaklúbbi. Við höfum haldið hópinn í ein 11 ár, eða síðan við útskrifuðumst úr grunnskóla. Klúbbstarfsemin hófst eftir æðislega sumarbústaðaferð eftir samræmdu prófin. Þar var margt brallað og erum við enn að.

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...